Nú sólin vermir hal og sprund.

Þegar sól hækkar á lofti dregur úr starfsemi félagsins. Kraftur einkenndi starfið í vor sem náði ákveðnu hámarki þegar heimasíða félagsins opnaði í sömu viku og sveinspróf var haldið. Óhætt er að segja að allir sem þar komu að máli hafi staðið sig með sóma; nemar, kennarar, nefndir og stjórn félagsins. Á óvissutímum er það […]

Ný heimasíða

Velkomin á heimasíðu Félags íslenskra gullsmiða. Fimmtudagurinn 26. maí 2011 er formlegur opnunardagur síðunnar.  Ætlunin er að hér verði vettvangur gullsmiða til að miðla upplýsingum og fróðleik um fagið.  Félagsmenn eru hvattir til að senda inn uppbyggilegt efni og skemmtilegt.  Stjórn, ritnefnd og netnefnd hafa unnið að síðunni undanfarnar vikur með ómetanlegri aðstoð Arnar Haraldssonar.  […]

Sveinspróf

Þrír nemar þreyta nú sveinspróf í Tækniskóla Íslands,  Hönnunar og handverksdeild. Gullsmíðasveinarnir væntanlegu verða útskrifaðir föstudaginn 27. maí við hátíðlega athöfn sem Félag íslenskra gullsmiða stendur fyrir í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, kl. 19:00 .

Fyrsta færsla

Vissir þú að hægt er að draga 1 gr af gulli í 2.5 km langan vír sem þá er orðinn 5 míkron eða fimm milljónustu úr metra á þykkt.  Eins má þynna gull niður í 0.18 míkron, 3.4 gr af 23k blaðgulli af þessari þykkt þekur flöt sem er 1 fermeter. Silfur hefur mannkynið nýtt […]