Aðalfundur FÍG verður haldinn laugardaginn 2. mars n.k. að Hótel Holti og hefst klukkan 16:00. Að loknum venjulegum aðalfundarstörfum verður snæddur kvöldverður og mun skemmtinefndin taka málin í sínar hendur þegar líða tekur á kvöldið. Veglegt happdrætti, tilboð á barnum og fleira í boði. Fjölmennum, stjórnin.
Monthly Archives: February 2013
Sigmar Ó. Maríusson
Netnefnd heimsótti Sigmar Ó. Maríusson gullsmið á sprengidegi 2013 í fallegu veðri. Fyrr um daginn hafði Sigmar svipast um eftir skrímslum. Sjá má mynd af skrímsli einu á síðunni sem tengist þessum pósti þar sem einnig má finna vísukorn um Steingrím J. Sigfússon sveitunga Sigmars.