Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður fjallar um hönnun sýningarinnar Silfur Íslands í Þjóðminjasafni.

Þriðjudaginn 18. febrúar kl. 12 mun Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður og listrænn stjórnandi sýningarinnar Silfur Íslands halda fyrirlestur í Þjóðminjasafninu.  Í erindi sínu fjallar Steinunn um sýn sína og Páls Hjaltasonar hönnuðar, á þeim fjársjóði sem silfurgripir í Þjóðminjasafni Íslands eru og hvernig hugmyndir um uppröðun gripanna kviknuðu og þróuðust. Þá segir Steinunn frá samvinnu við […]