Arna stjarna formaður FÍG og netnefnd heimsóttu listamanninn Sigurð Hrafn og konu hans Grétu á fallegt heimili þeirra í Mosfellsbæ. Áttu þar góða og eftirminnilega stund.
Category Archives: Uncategorized
Dóra G. Jónsdóttir
Netnefnd bankaði uppá hjá Dóru G. Jónsdóttur í Gullkistunni við Frakkastíg. Þar má lesa sögu fagsins í verkfærum og húsgögnum sem þjóna enn sínu hlutverki fullkomlega.
Ágætu gullsmiðir
Þá er komið að fyrsta félagsfundi vetrarins sem verður haldinn miðvikudaginn 23. október kl. 19.00 á Kaffi Sólon Bankastræti 7a. Vinsamlegast tilkynnið komu ykkar Maríu Hallbjörnsdóttur maria@si.is Hér fyrir neðan er linkur inn á Hönnunarsjóðinn sem við hvetjum ykkur að skoða nánar fyrir fundinn. http://sjodur.honnunarmidstod.is
Leiðin að Silfri Íslands
Þriðjudaginn 15. október kl. 12 flytur Lilja Árnadóttir erindi sem hún nefnir Leiðin að Silfri Íslands. Í erindinu sem er liður í fyrirlestraröð Þjóðminjasafnsins mun Lilja varpa ljósi á hversu fjölþætt vinna, umfangsmikil skráning og rannsóknir liggja að baki sýningunni Silfur Íslands sem nú stendur í Bogasal Þjóðminjasafnsins.
Bleika slaufan 2013
Bleika Slaufan 2013 er hönnuð af þeim Ástþór og Kjartani gullsmiðum hjá Orr og er sérlega falleg þetta árið. Bleika Silfurslaufan 2013 er handunnin viðhafnarútgáfa Bleiku Slaufunnar, og er hún smíðuð á verkstæði hönnuðanna, Orr í Bankastræti 11. Þar er hún fáanleg og einnig hjá gullsmiðum víða um land. Orr gefur alla vinnu við hönnun og smíði […]
Gullsmiðadagurinn
Kæru félgsmennn. Gullsmiðadagurinn er framundan þann 19. október nk. Boðið verður uppá ókeypis hreinsun á skartgrip eins og fyrri ár. Auglýsing í útvarpi mun hljóma þessa sömu daga með nafni hverrar búðar sem tekur þátt. Þeir sem hafa áhuga að vera með vinsamlega tilkynnið það hið allra fyrsta á netfangið: skartis@mmedia.is eða í síma: Bolli 8211618 Karl […]
Tenglar
Ýmislegt sem tengist gullsmiðum og faginu má finna hér. M.a. frásagnir af Ebeneser Guðmundssyni gullsmið sem reisti fyrsta veitingahúsið á Kolviðarhóli. Þar bar margt furðulegt fyrir þ.a. dvölin varð skemmri en hann ætlaði.
Auglýsing frá Guðjóni og Aðalbirni.
Dóra G. Jónsdóttir sendi þessa skemmtilegu auglýsingu frá 1928. Í bréfi sem fylgdi segir hún: ,,Fann þessa gömlu auglýsingu og fannst líklegt að fleirum þætti gaman að sjá hana. Þarna er líka staðfesting á samstarfi þeirra Aðalbjarnar og Guðjóns.” Aðalbjörn Pétursson AP (1902 – 1955) og Guðjón Rósinkrans Bernharðsson GB (1901 – 1978) notuðu stimpilinn […]
Leifur Jónsson, Skartís ehf
Leifur Jónsson gullsmíðameistari og hönnuður leit við hjá Netnefnd FÍG. Sagði frá starfsemi sinni í máli og nokkrum myndum, brosmildur að vanda.
húnoghún
Við Skólavörðustíginn, sem endurreist Skólavarðan vaktar, er verslunin húnoghún. Þar innanbúðar fann netnefnd FÍG Sif Ægisdóttur gullsmið. Hún hafði frá mörgu skemmtilegu að segja.