Um félagið

Félag íslenskra gullsmiða

Félag íslenskra gullsmiða var stofnað 19. október 1924 og velflestir gullsmiðir landsins starfa innan vébanda þess. Helstu markmið félagsins eru að efla samheldni og standa vörð um réttindi íslenskra gullsmiða, viðhalda menntun þeirra og stuðla að framförum og nýsköpun í greininni.

Meðal verkefna félagsins er að skerpa á gæðavitund almennings, efla nám og endurmenntun í greininni, eiga samskipti við erlenda starfsfélaga og standa fyrir kynningum, sýningum og vinnuskiptum. Félagið er aðili að Samtökum iðnaðarins og Hönnunarmiðstöð Íslands.

Óhætt er að fullyrða að íslenskir gullsmiðir standi erlendum starfsbræðrum ekkert að baki í fagmennsku og listsköpun. Handsmíðaðir íslenskir skartgripir eru bæði fallegir, vel unnir og hverjum manni sómi að bera slíkan grip.