Gullmiðadagurinn 2015

Gullsmiðadagurinn er n.k. laugardag, 17. október. Þá munu gullsmiðir hreinsa uppáhaldsskartgrip viðskiptavina frítt. Búast má við að hreinsivörur verði á tilboði og gullsmiðir í hátíðarskapi. Því er kjörið að heimsækja þinn gullsmið og fá fría þjónustu og góð ráð um umhirðu fagurra muna.

Ágætu gullsmiðir

Þriðjudaginn 13. október kl. 19:00, á Sólon í Bankastræti 7a (efri hæð) ætlar félagið að halda örstuttan félagsfund. Aðalefni kvöldsins er erindi sem fræðslunefnd FÍG ætlar að bjóða okkur uppá. Einnig ætlar Sigurður Ingi Bjarnason í SIGN að segja okkur frá birgðakerfi sem hann hefur verið að nota í sínum rekstri. Við hvetjum alla til að […]

Ágætu gullsmiðir

Í tilefni af stórafmæli mínu opna ég sýningu á nytjahlutum úr silfri laugardaginn 3. október. Sýningin verður á Torginu í Þjóðminjasafninu og stendur yfir dagana 3. til 18. október á opnunartíma safnsins. Með góðri kveðju Stefán Bogi Stefánsson

Bleika slaufan

Erling Jóhannesson hönnuður og silfursmiður hannaði bleiku slaufuna í ár. Hann rekur verslun sína og verkstæði í Aðalstræti 10, elsa húsi Reykjavíkur. Þar hefur hann skapað afslappað og notalegt umhverfi, sem gaman er að heimsækja. Erling vann hugmyndasamkeppni sem var haldin af Krabbameinsfélagi Íslands í samstarfi við Félag Íslenskra gullsmiða í apríl síðastliðnum um hönnun slaufunnar og […]

Raf

Raf sem finnst við Eystrasalt er 30- 100 milljón ára steingerð trjákvoða af barrtrjám og stærstur  hluti þess  finnst við strendur Pólands og Kaliningrad (Königsberg) héraðs Rússlands. Meira um raf.

Til hamingju heiðursfélagi

Jóhannes Leifsson gullsmiður og heiðursfélagi Félags íslenskra gullsmiða verður 95 ára þann 6. júlí n.k. Félag íslenskra gullsmiða óskar honum og fjölskyldu hans hjartanlega til hamingju. Í bókinni Gullsmiðatal frá 1990 segir að Jóhannes sé fæddur þann 6. júlí 1920 á Ketilstöðum í Hvammssveit Dalasýslu. Faðir hans var Leifur Grímsson bóndi og móðir hans var […]

Nýsveinar 2015

Myndarlegur hópur nýrra gullsmiða við athöfn í Húsi atvinnulífsins við Borgartún þann 4. júní. Myndin var fengin að láni frá Önnu Maríu gullsmið en einn nemanna, Lena l.t.v., útskrifaðist frá henni.

Sumarferð FÍG

Kæri félagi, Félag íslenskra gullsmiða ætlar að fara í stutta, en skemmtilega rútuferð miðvikudaginn 13. maí kl. 18:20 (frí daginn eftir) Stefnan er tekin á blómabæinn Hveragerði, þar mun ísdrottningin og formaður Samtaka iðnaðarins Guðrún Hafsteinsdóttir hjá Kjörís taka á móti okkur og segja okkur frá sögu fyrirtækisins. Eftir heimsóknina ætlum við að snæða létt […]