Ágætu félagsmenn Félagsfundur Félags íslenskra gullmsiða verður haldinn þriðjudaginn 18. júní n.k. í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, 6. hæð og hefst klukkan 19:00. Dagskrá: Inntaka nýrra félagsmanna Afmælisnefnd – Þeir sem hafa áhuga á að starfa í nefndinni eru hvattir til að mæta. App í snjallsíma – Hluti af markaðátaki FÍG Hugmyndir um fagfélag sem […]
Author Archives: netnefnd
Útskrift sveina 31. maí 2013.
Nýsveinarnir: Hannes, Rúnar, Edda, Thelma, Ási og Hrefna ásamt Örnu súperstjörnu. Til hamingju! Gaman er að geta þess að þau Rúnar, Edda, Thelma og Hrefna hafa gengið í raðir FÍG.
Frá Hönnunarmiðstöð Íslands
Gullsmiðir, verið velkomnir á aðalfund Hönnunarmiðstöðvar Íslands sem haldinn verður Í Hönnunarmiðstöð, Vonarstræti 4b, fimmtudaginn 30. maí 2013 kl. 17:00. Allir hönnuðir og arkitektar eru hvattir til mæta.
Íslenzk silfursmíð
Þjóðminjasafn Íslands hefur gefið út rit Þórs Magnússonar, fyrrverandi þjóðminjavarðar, Íslenzk silfursmíð. Þór hefur rannsakað íslenska silfursmíð um áratuga skeið og birtast rannsóknir hans nú á prenti í bókinni sem er í tveimur bindum. Þessa dagana, í apríl, er bókin á tilboðsverði. Ritstjóri er Bryndís Sverrisdóttir.
Sigurður H. Bjarnason gullsmíðameistari
Hér er fróðleg grein um Sigurð H. Bjarnason gullsmíðameistara sem bróðir hans Stefán Bjarnason yfirlögregluþjónn á Akranesi skrifaði 2011. Sigurður fæddist 1912 og lifði á tímum mikilla umbreytinga. Hann þjáðist af vanheilsu lengst af sem markaði líf hans. Greinin er óvenju heiðarleg ef svo má segja og sýnir hve lífsleiðin er fólki miserfið. Netnefnd þakkar […]
GÞ í Bankastræti
Netnefndin var á ferð í gamla miðbænum og leit inn hjá Ólafi G. Jósefssyni í Bankastræti. Hann, ásamt konu sinni og börnum reka verslunina Guðmundur Þorsteinsson eða GÞ skartgripir og úr. Verslunin á sér langa sögu og merka er nær aftur til ársins 1925.
Aðalfundur FÍG 2013.
Aðalfundur FÍG verður haldinn laugardaginn 2. mars n.k. að Hótel Holti og hefst klukkan 16:00. Að loknum venjulegum aðalfundarstörfum verður snæddur kvöldverður og mun skemmtinefndin taka málin í sínar hendur þegar líða tekur á kvöldið. Veglegt happdrætti, tilboð á barnum og fleira í boði. Fjölmennum, stjórnin.
Sigmar Ó. Maríusson
Netnefnd heimsótti Sigmar Ó. Maríusson gullsmið á sprengidegi 2013 í fallegu veðri. Fyrr um daginn hafði Sigmar svipast um eftir skrímslum. Sjá má mynd af skrímsli einu á síðunni sem tengist þessum pósti þar sem einnig má finna vísukorn um Steingrím J. Sigfússon sveitunga Sigmars.
4 fræknar
Þær stöllurnar Arna Arnardóttir, Harpa Kristjánsdóttir og dóttir hennar Hera ásamt Lovísu Halldórsdóttur Olesen starfrækja við Súðarvog 44 gullsmíðavinnustofu sem er vel tækjum búin og umfram allt snyrtileg. Arna sem gegnir nú formannsembætti í Félagi íslenskra gullsmiða eins og flestum er kunnugt segir að þetta fyrirkomulag henti henni sérstaklega vel. Meira hér.
Gamalt ráð til að hreinsa silfur fyrir jólin.
Á mbl.is má sjá hvar nemar í efna- og lífefnafræði sýna hvernig hægt er að gera silfurbúnaðinn á heimilinu glansandi fínan með því að nota sjóðandi vatn og matarsóda. Hafa ber í huga að best er að sjóða kalt vatn þar sem heitavatnið inniheldur brennistein.